Um Kraum

Kraum er verslun sem var stofnuð með það að markmiði að selja eingöngu íslenska hönnunarvöru og velja úr það besta sem gæfist á hverjum tíma. Í upphafi var mynduð valnefnd sem valdi úr innsendum munum og mótaði hún línuna fyrir ásýnd verslunarinnar. Verslunin er staðsett í hjarta borgarinnar í elsta húsinu "Húsi Skúla fógeta", en einmitt þar hófst ullariðnaður Íslendinga á vegum Innréttinganna. Í lok árs 2008 var Kraum útnefnd sem "Ferðamannaverslun ársins 2008" af Reykjavíkurborg og Kaupmannasamtökum. Nú eru til sölu vörur frá 120 íslenskum hönnuðum og hefur vöruúrval sýnt að íslensk hönnunarvara er fyllilega samkeppnishæf og hefur gæði og framsetning tekið stakkaskiptum hin síðari ár.
Hafa samband

Til viðskiptavina:

Hafið samband í síma 517 7797 eða sendið skeyti á kraum@kraum.is


Til hönnuða/framleiðanda:

Þeir sem hug hafa á að selja Kraum vörur hafi samband við framkvæmdastjóra Höllu Bogadóttur á halla@kraum.is.